Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 22:06
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Liverpool svaraði með þremur mörkum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Wolves 1 - 3 Liverpool
0-1 Andrew Robertson ('51 )
0-2 Mohamed Salah ('53 )
0-3 Curtis Jones ('74 )
1-3 Hee-Chan Hwang ('91)

Englandsmeistarar Liverpool eru komnir áfram í enska bikarnum eftir sigur gegn botnliði ensku úrvalsdeildarinnar Wolves. Liðin mættust í úrvalsdeildinni í miðri viku og höfðu Úlfarnir óvænt betur, en í kvöld voru lærlingar Arne Slot staðráðnir í að svara fyrir sig.

Liverpool stjórnaði ferðinni í kvöld og fékk góð færi til að skora í fyrri hálfleik sem fóru forgörðum. Boltinn rataði loks í netið í upphafi síðari hálfleiks þegar bakvörðurinn Andy Robertson tók til sinna ráða.

Robertson náði forystunni á 51. mínútu þegar Liverpool geystist upp í skyndisókn og endaði boltinn hjá Robertson sem lét vaða með fullkomnu skoti rétt utan vítateigs. Skotið var fast og hnitmiðað svo Sam Johnstone náði ekki til boltans.

Skömmu síðar tvöfaldaði Mohamed Salah forystuna með marki af stuttu færi eftir frábæra lága fyrirgjöf frá Robertson.

Úlfarnir færðu sig framar á völlinn og reyndu að minnka muninn en tókst ekki. Þess í stað innsiglaði Curtis Jones sigur Liverpool eftir laglegt einstaklingsframtak á 74. mínútu.

Hwang Hee-chan minnkaði muninn eftir langt útspark frá Johnstone í uppbótartíma svo lokatölur urðu 1-3. Liverpool er búið að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum.

   06.03.2026 18:59
Slot: Ætlum að reyna að vinna báðar keppnirnar

Athugasemdir
banner
banner
banner