Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
banner
   fös 06. mars 2026 21:56
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: PSG tapaði á heimavelli
Mynd: EPA
Mynd: EPA
PSG 1 - 3 Monaco
0-1 Maghnes Akliouche ('27)
0-2 Aleksandr Golovin ('55)
1-2 Bradley Barcola ('71)
1-3 Folarin Balogun ('73)

PSG tók á móti AS Monaco í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild franska boltans og lenti undir þegar Maghnes Akliouche skoraði eftir undirbúning frá Folarin Balogun á 27. mínútu. Markið skrifast þó á Warren Zaïre-Emery sem gerðist sekur um stórfurðuleg varnarmistök þar sem hann reyndi að leika á hálft Monaco liðið í eigin vítateig áður en hann tapaði boltanum.

Aleksandr Golovin kom inn af bekknum snemma í síðari hálfleik og tvöfaldaði forystu Mónakó skömmu síðar eftir slakan varnarleik hjá PSG.

Luis Enrique gerði þrefalda skiptingu og tóku heimamenn að sækja. Bradley Barcola minnkaði muninn eftir stoðsendingu frá Achraf Hakimi en Balogun skoraði beint í kjölfarið til að endurheimta tveggja marka forystu.

Hægt er að setja stórt spurningarmerki við markvörð Mónakó sem átti að verja frá Barcola, en Balogun innsiglaði svo sigurinn með flottu skoti utan vítateigs sem breytti um stefnu af varnarmanni áður en boltinn endaði í netinu.

Lokatölur urðu 1-3 og er topplið PSG búið að tapa tveimur af síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Frakklandsmeistararnir eru þrátt fyrir það með fjögurra stiga forystu á Lens sem á leik til góða en hefur verið að misstíga sig mikið að undanförnu.

Þetta er fjórði sigur Mónakó í röð og er liðið þremur stigum frá meistaradeildarsæti. Mónakó lagði einnig Lens að velli í febrúar.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner