Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 21:39
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Bayern skoraði fjögur án Harry Kane
Mynd: Bayern München
FC Bayern 4 - 1 Borussia Mönchengladbach
1-0 Luis Diaz ('33 )
2-0 Konrad Laimer ('45+1 )
3-0 Jamal Musiala ('57 , víti)
4-0 Nicolas Jackson ('79 )
4-1 Wael Mohya ('89 )
Rautt spjald: Rocco Reitz, Borussia M. ('55)

Þýskalandsmeistarar FC Bayern tóku á móti Borussia Mönchengladbach í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild þýska boltans og skópu þægilegan sigur.

Markavélin Harry Kane var fjarverandi vegna kálfameiðsla en liðsfélagarnir stigu upp í kvöld. Luis Díaz skoraði og lagði upp fyrir Konrad Laimer í fyrri hálfleiknum áður en Jamal Musiala og Nicolas Jackson gerðu út um viðureignina í síðari hálfleik.

Rocco Reitz var rekinn af velli í liði gestanna frá Gladbach á 55. mínútu og vítaspyrna dæmd, sem Musiala skoraði úr.

Wael Mohya gerði eina mark Gladbach í tapinu. Bayern er á góðri leið með að tryggja sér enn einn Þýskalandsmeistaratitilinn þar sem liðið er með 14 stiga forystu á toppi deildarinnar, en Dortmund á leik til góða í öðru sætinu.
Athugasemdir
banner