Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 21:09
Ívan Guðjón Baldursson
Toney og Mahrez afgreiddu meistarana
Mynd: EPA
Mynd: Al Hilal
Það fór stórleikur fram í efstu deild í Sádi-Arabíu fyrr í kvöld þegar titilbaráttulið Al-Ahli tók á móti ríkjandi meisturum Al-Ittihad.

Ivan Toney skoraði eina markið í fyrri hálfleik eftir stoðsendingu frá Galeno og jafnaði Fabinho muninn með marki úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks.

Leikurinn var jafn og tíðindalítill en heimamenn nýttu færin sín til hins ítrasta í síðari hálfleik til að fara með sigur af hólmi. Riyad Mahrez endurheimti forystu Al-Ahli á 59. mínútu áður en Firas Al-Buraikan innsiglaði 3-1 sigur.

Al-Ahli er með 62 stig eftir 25 umferðir og fer í toppsæti deildarinnar við þennan sigur, einu stigi fyrir ofan Al-Nassr sem á leik til góða. Al-Ittihad siglir lygnan sjó í efri hluta deildarinnar.

Franck Kessié, Roger Ibanez, Édouard Mendy, Danilo Pereira, Moussa Diaby, Houssem Aouar, Steven Bergwijn og Youssef En-Nesyri voru meðal byrjunarliðsmanna í stórleiknum.

Á sama tíma skoraði Karim Benzema tvennu í sigri Al-Hilal sem er í þriðja sæti, einu stigi á eftir Al-Ahli.

Malcom og Sergej Milinkovic-Savic komust einnig á blað í 4-0 sigri Al-Hilal sem er enn taplaust í öllum keppnum á tímabilinu. Al-Hilal tapaði síðast fótboltaleik gegn Fluminense þegar liðin mættust í útsláttarkeppni HM félagsliða síðasta sumar.

Grikkirnir Georgios Masouras og Konstantinos Fortounis tryggðu þá sigur Al-Khaleej á meðan markavélin Roger Martínez setti tvennu í naumum sigri Al-Taawon.

Al-Ahli 3 - 1 Al-Ittihad
1-0 Ivan Toney ('23)
1-1 Fabinho ('51, víti)
2-1 Riyad Mahrez ('59)
3-1 Firas Al-Buraikan ('84)

Al-Hilal 4 - 0 Al-Najma
1-0 Karim Benzema ('43)
2-0 Karim Benzema ('81)
3-0 Malcom ('84)
4-0 Sergej Milinkovic-Savic ('87)

Al-Khaleej 2 - 1 Al-Hazem

Al-Taawon 3 - 2 Al-Fateh

Athugasemdir
banner