Real Madrid hafði áhuga á að fá spænska landsliðsmiðjumanninn Rodri Hernandez frá Manchester City en nú er útlit fyrir að hann sé ekki á förum neitt í sumar.
Íþróttafréttamaðurinn Matteo Moretto segir að Rodri sé nálægt því að skrifa undir nýjan samning við City og stefnt sé að því að klára þau mál áður en hann fer á HM með spænska landsliðinu.
Íþróttafréttamaðurinn Matteo Moretto segir að Rodri sé nálægt því að skrifa undir nýjan samning við City og stefnt sé að því að klára þau mál áður en hann fer á HM með spænska landsliðinu.
Miðsvæði Real Madrid hefur ekki verið nægilega gott síðan Toni Kroos yfirgaf félagið og áhugi var á að fá Rodri til að reyna að breyta því.
Rodri, sem er 29 ára, vann Ballon d’Or gullboltann 2024.


