Enskir miðlar telja að Alejandro Garnacho sjái eftir viðskilnaði sínum við Manchester United og að hann sé ósáttur hjá Chelsea, sem keypti hann fyrir 40 milljónir punda síðasta sumar.
Garnacho skrifaði undir sjö ára samning við Chelsea, til loka tímabilsins 2032.
Nú vekur athygli að hann hefur fjarlægt öll Chelsea myndbönd af TikTok aðgangi sínum. Þau fjögur myndbönd sem eru eftir á aðgangnum eru öll frá tíma hans hjá United.
Chelsea tekur á móti United á laugardaginn.

Garnacho hefur spilað 38 leiki fyrir Chelsea í öllum keppnum, skorað átta mörk og átt fjórar stoðsendingar.
Enska blaðið Telegraph segir að Chelsea sé í leit að styrkingu í stöðu Garnacho á vinstri kantinum.
Garnacho sagði frá því á dögunum að það væri eftirsjá hvernig viðskilnaðurinn við United var en hann lenti upp á kant við Rúben Amorim, þáverandi stjóra.