Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
   fim 14. júlí 2022 21:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Manchester
Áslaug Munda: Heyrði í þeim öllum þegar ég var að koma inn á
Icelandair
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir lék í kvöld sinn fyrsta leik á stórmóti er hún kom inn á sem varamaður gegn Ítalíu á Evrópumótinu.

Lestu um leikinn: Ítalía 1 -  1 Ísland

„Það er svekkelsi að hafa ekki náð þremur stigum, en ég er líka stolt af liðinu að ná að halda út og landa allavega einu stigi,“ sagði Áslaug Munda.

„Við vorum að spila varnarleik, við vorum passívar. Svo vorum við að nýta skyndisóknir. Við ætluðum að vera þéttar fyrir, setja hann upp í horn og hlupa. Færanýtingin var ekki alveg eins og við vonuðumst eftir, en það er bara næsti leikur þá.“

„Ég er mjög stolt,“ sagði Áslaug Munda spurð að því hvernig hefði verið að leika fyrsta leikinn á stórmóti.

„Ég er mjög ánægð að hafa fengið tækifærið.“

Fjölskyldan var í stúkunni að fylgjast með. „Þau voru þarna öll og ég heyrði í þeim öllum þegar ég var að koma inn á. Það var mjög gaman.“

Allt viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner
banner