Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 15. mars 2023 21:02
Brynjar Ingi Erluson
Hálfleikur: Ekkert kraftaverk í spilunum
Mynd: Getty Images
Real Madrid og Liverpool eru að gera markalaust jafntefli í hálfleik í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það stefnir ekki í kraftaverk hjá enska liðinu.

Real Madrid hefur skapað sér nokkra góða sénsa. Eduardo Camavinga átti gott skot í slá og þá varði Alisson vel frá Vinicius Junior.

Darwin Nunez átti besta færi Liverpool en Thibaut Courtois gerði vel í markinu.

Það er ekkert kraftaverk í spilunum eins og er. Liverpool þarf þrjú mörk til að komast í framlengingu.

Napoli er að vinna Eintracht Frankfurt 1-0. Victor Osimhen gerði mark Napoli. Ítalska liðið að sigla örugglega inn í 8-liða úrslit.

Real Madrid 0 - 0 Liverpool

Napoli 1 - 0 Eintracht Frankfurt
1-0 Victor Osimhen ('45 )
Athugasemdir
banner
banner