Lækka verðmiðann á Garnacho - Arsenal hefur áhuga á Coman - Frankfurt setur verðmiða á Ekitike
   þri 15. apríl 2025 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vonast til að sigur sinn verði hvatning fyrir Man Utd
Rory McIlroy.
Rory McIlroy.
Mynd: EPA
Rory McIlroy fór með sigur af hólmi á Masters golfmótinu um liðna helgi. Vann hann mótið eftir mikla dramatík.

McIlroy, sem er einn besti golfari sögunnar, er stuðningsmaður Manchester United í enska boltanum og í viðtölum eftir sigur sinn beindi hann kastljósinu að United.

Hann vonast til þess að sigurinn á Masters muni reynast hvatning fyrir Man Utd sem hefur átt alveg hræðilegt tímabil.

Hann var spurður að því hvort hann myndi mæta í græna jakkanum - sem hann fékk fyrir sigur sinn - á Old Trafford.

„Alveg klárlega, ef það getur verið hvatning fyrir betri spilamennsku," sagði McIlroy.

Man Utd mætir Lyon í Evrópudeildinni á fimmtudag og er það alveg gríðarlega mikilvægur leikur fyrir liðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner