Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
   mán 15. ágúst 2016 21:23
Ívan Guðjón Baldursson
Ejub ósáttur að leikslokum: Við erum í fallbaráttu
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ó., var skiljanlega ósáttur með leik sinna manna gegn ÍA í Pepsi-deildinni í kvöld.

Skagamenn unnu 3-0 og eru Ólafsvíkingar búnir að tapa fimm Pepsi-deildar leikjum í röð.

„Skaginn var með leikinn í sínum höndum og þeir voru bara betri allan tímann," sagði Ejub sem er ekki mikið fyrir að tala undir rós.

„Fátt gekk upp, það vantaði baráttuvilja og leikgleði. Fólk var fljótt að gefast upp á meðan Akranesmenn hlupu á eftir boltanum og pressuðu. Ég er engan veginn sáttur með hvernig við vorum að spila."

Ejub var spurður hvort Ólafsvíkingar, sem byrjuðu tímabilið frábærlega, gætu endað í fallbaráttu eftir fimm tapleiki í röð.

„Við erum í fallbaráttu núna, það er bara svoleiðis. Við spiluðum vel fyrri hluta tímabilsins og sýndum meiri leikgleði og miklu meiri grimmd og aga, en núna virtust voða litlir hlutir taka okkur úr jafnvægi. Ef við spilum svona þá er bara ekki von á góðu.

„Við verðum að breyta þessum hlutum til að lenda ekki í fallbaráttu, það er eina leiðin. Þetta verður að breytast verulega."

Slapp
banner