Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 11:00
Kári Snorrason
Heimild: Sunnlenska 
Fékk boð frá eigandanum á leikinn - „Hlutverk Hákons verður að sækja boltann úr netinu“
Marinó Fannar Garðarsson, formaður aðdáendaklúbbs Macclesfield á Íslandi.
Marinó Fannar Garðarsson, formaður aðdáendaklúbbs Macclesfield á Íslandi.
Mynd: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl
Macclesfield sló ríkjandi bikarmeistara Crystal Palace út í síðustu umferð.
Macclesfield sló ríkjandi bikarmeistara Crystal Palace út í síðustu umferð.
Mynd: Macclesfield FC
Mynd: Macclesfield
Utandeildarliðið Macclesfield FC mætir úrvalsdeildarliðinu Brentford í 32 liða úrslitum enska FA bikarsins í kvöld. Macclesfield minnti rækilega á töfra keppninnar í síðustu umferð þegar liðið sló ríkjandi bikarmeistara Crystal Palace út úr keppni.

Á vellinum verður íslenskur fulltrúi í marki Brentford, Hákon Rafn Valdimarsson. Á pöllunum á Moss Rose verður þó annar Íslendingur, sá heitir Marinó Fannar Garðarsson og er formaður Aðdáendaklúbbs Macclesfield á Íslandi.

Moss Rose rúmar rúmlega fimm þúsund áhorfendur og segir Marinó aðeins þá allra hörðustu fá miða á leikinn. Hann ræddi við Sunnlenska.is um ferðina.

„Það var lítið sofið síðustu nótt og ég held að það verði ennþá minna sofið næstu nótt. Það er ekki bara leikurinn, það er líka að fara á Moss Rose og hitta allt fólkið. Völlurinn tekur bara 5.300 manns og það voru bara allra hörðustu stuðningsmennirnir sem fengu miða á leikinn. Allir syngja með og nálægðin við völlinn er mikil. Það er hægt að gefa leikmönnunum fimmur þegar þeir skora. Þetta verður rosalegt,“ segir Marinó í samtali við Sunnlenska.

Marinó komst í kastljósið á Englandi eftir að fagnaðarlæti hans í kjölfar sigursins á Palace fóru á flug á samfélagsmiðlum. Hann er stýrimaður á flutningaskipinu Helgafelli hjá Samskipum og var úti á sjó þegar liðið sló út Crystal Palace og birti myndskeið af fagnaðarlátunum.

Hann hefur verið til tals í ótal hlaðvörpum í Englandi og var hann meðal annars gestur í morgunsjónvarpi BBC á dögunum.

„Ég póstaði fagnaðarlátunum á Instagram og þau enduðu inni á miðlum félagsins og fóru víst ekki framhjá neinum þarna úti. Stuðningsmennirnir skoruðu í kjölfarið á Robert Smethurst, eiganda félagsins, að bjóða mér á leikinn og morguninn eftir vaknaði ég með skilaboð frá honum í símanum.

Það var óraunveruleg lífsreynsla, þessi maður er algjör meistari sem keypti félagið á fylleríi árið 2020 og endurreisti eftir að það varð gjaldþrota. Hann var svona líka almennilegur og bauð okkur á leikinn,“
segir Marinó.

Marinó spáir sínum mönnum 3-1 sigri í kvöld og segir gaman að sjá Hákon Rafn spila: „Ég hlakka til að sjá Hákon spila, en hans hlutverk verður að sækja boltann í netið.“

Sjáðu greinina í heild á Sunnlenska.is
Athugasemdir
banner
banner