Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   lau 09. maí 2026 13:02
Brynjar Ingi Erluson
Tchouameni fer ekki í agabann - „Ég átti liðsfélaga sem sló annan liðsfélaga með golfkylfu“
Alvaro Arbeloa
Alvaro Arbeloa
Mynd: EPA
Valverde er frá í tvær vikur
Valverde er frá í tvær vikur
Mynd: EPA
Tchouameni verður í hópnum hjá Real Madrid gegn Barcelona
Tchouameni verður í hópnum hjá Real Madrid gegn Barcelona
Mynd: EPA
Alvaro Arbeloa, þjálfari Real Madrid, mætti á fréttamannafund fyrir leik liðsins gegn Barcelona á morgun, en hann svaraði þar spurningum um handalögmál þeirra Federico Valverde og Aurelien Tchouameni.

Andrúmsloftið hjá Real Madrid er spennuþrungið og er titlalaust tímabil að fara í hausinn á mönnum.

Tchouameni og Valverde höfðu rifist á æfingum hjá félaginu og endaði það með ósköpum er Valverde var ýtt á borð. Úrúgvæinn þurfti að fara á sjúkrahús og kom í ljós að hann hafi hlotið höfuðáverka sem munu halda honum frá keppni í tvær vikur.

Arbeloa segist stoltur af leikmönnunum og að svona atvik geti komið upp.

„Það er tvennt sem mig langar að segja. Í fyrsta lagi er mjög stoltur af ákveðni, hraða og gagnsæi félagsins og í öðru lagi að leikmenn hafi viðurkennt mistökin, lýst yfir eftirsjá og beðist afsökunar. Það er nóg fyrir mig og ætla ég ekki að krossfesta þá því þeir verðskulda það ekki.“

„Þeir hafa sýnt mér hvaða þýðingu það hefur að vera leikmaður Real Madrid á síðustu fjórum mánuðum og árin. Þeir hafa sýnt fram á hvað það þýðir að vera leikmaður Real Madrid og ég mun aldrei gleyma því. Það er leikmaður sem er fullkomið dæmi um hvernig leikmaður Real Madrid á að vera og það er Juanito. Gerði hann aldrei mistök? Við erum öll stolt af því sem hann gerði í hverjum einasta leik og hann skildi það sem Real Madrid stóð fyrir. Hann gaf allt sitt, en það sem ég elska mest við hann er að hann gerði mistök eins og allir geta gert. Valverde og Tchouameni verðskulda það að við höldum áfram með lífið og að við gefum þeim tækifæri til að berjast fyrir klúbbinn. Ég er stoltur af þeim og neita að leyfa fólki að nota þetta dæmi til þess að efast fagmennsku þeirra. Það er alger lygi að þeir séu ekki fagmenn og að þeir hafi sýnt mér vanvirðingu. Það er bara algjört kjaftæði,“
sagði Arbeloa.

Hann segist bera ábyrgð á öllu sem gerist hjá félaginu, en finnst atvikið blásið upp. Minntist hann á tíma sinn hjá Liverpool þegar Craig Bellamy sló John Arne Riise með golfkylfu fyrir leik liðsins gegn Barcelona í Meistaradeildinni.

Arbeloa talaði um að hann væri ekkert sérstaklega pirraður yfir því að Tchouameni og Valverde hafi slegist heldur er hann óánægður með að því hafi verið lekið í fjölmiðla.

„Ég er ábyrgur fyrir öllu sem gerist hjá Real Madrid.“

„Ég átti liðsfélaga sem lamdi annan liðsélaga með golfkylfu. Það alvarlegasta fyrir mér er að það sem gerist innan búningsklefans, helst innan klefans. Þetta var óhappaatvik og það þarf bara að leggja það til hliðar.“

„Ég mun segja það aftur af því ég var kannski ekki nógu skýr með það áður, en að leka því sem gerðist í búningsklefanum eru svik við Real Madrid og merki félagsins.“
.

Hann segist ekki vita hver hafi lekið þessum upplýsingum í fjölmiðla.

„Nei, ég vinn ekki fyrir CIA. Ég er ekki að ásaka mína leikmenn eða einhvern annan því ég get það ekki. Það eru margir sem starfa hjá Real Madrid og ég ætla ekki að vera benda fingrum á einhvern. Það sem gerist með mína leikmenn verður alltaf á milli mín og þeirra.“

Tchouameni og Valverde voru báðir sektaðir, en fengu ekki agabann. Frakkinn verður í hópnum hjá Real Madrid gegn Barcelona á morgun, en Arbeloa staðfesti þær fregnir á fundinum.
Slapp
banner
banner
banner