Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
banner
   lau 09. maí 2026 13:57
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Kaflaskiptur leikur á Riverside
Tommy Conway fékk nokkur færi til að skora fyrir Boro
Tommy Conway fékk nokkur færi til að skora fyrir Boro
Mynd: Middlesbrough
Middlesbrough 0 - 0 Southampton

Middlesbrough og Southampton gerðu markalaust jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrsitum í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildina.

Í fyrri hálfleiknum voru Boro-menn líklegri til að skora og í raun ótrúlegt að liðinu hafi ekki tekist það, en í þeim síðari tók Southampton völdin.

Taylor Harwood-Bellis setti boltann í slá og þá átti Samuel Edozie skot rétt framhjá markinu.

Engin mörk en það er vonandi að þau muni láta sjá sig í seinni leiknum sem fer fram á St. Mary's, heimavelli Southampton, á þriðjudag.

Sigurvegarinn mætir Hull eða Millwall í úrslitum á Wembley.
Slapp
banner
banner
banner