Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 09. maí 2026 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Fór í sturtu og grét í tíu mínútur"
Mynd: EPA
Niklas Sule, varnarmaður Dortmund, hefur tilkynnt að hann muni leggja skóna á hilluna eftir tímabilið aðeins 30 ára að aldri.

Sule, sem er aðeins þrítugur, meiddist á hné í leik með Dortmund gegn Hoffenheim í síðasta mánuði og var óttast um að hann hafi slitið krossband í þriðja sinn á ferlinum. Það kom í ljós að meiðslin voru ekki svo alvarleg.

Hann sagði frá ákvörðun sinni í hlaðvarpsþætti. Þar talaði hann einnig um meiðslin gegn Hoffenheim.

„Læknirinn var að skoða mig inn í klefa og horfði á sjúkraþjálfarann og hristi höfuðið, sjúkraþjálfarinn gerði það sama. Ég fór í sturtu og grét í tíu mínútur. Ég hugsaði þarna: Það er slitið," sagði Sule.

Sule kom inn á sem varamaður í blálokin í 3-2 sigri Dortmund gegn Frankfurt í gær en það gæti hafa verið síðasti leikurinn hans á ferlinum. Dortmund heimsækir Werder Bremen þann 16. maí í síðustu umferð þýsku deildarinnar.
Slapp