Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 09. maí 2026 10:52
Brynjar Ingi Erluson
Bruno valinn leikmaður tímabilsins af íþróttafréttamönnum
Íþróttafréttamenn völdu Bruno Fernandes besta leikmann tímabilsins
Íþróttafréttamenn völdu Bruno Fernandes besta leikmann tímabilsins
Mynd: EPA
Bunny Shaw var besta kona tímabilsins
Bunny Shaw var besta kona tímabilsins
Mynd: EPA
Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United á Englandi, hefur verið valinn besti leikmaður tímabilsins af samtökum íþróttafréttamanna, en hann rétt marði sigur á enska miðjumanninum Declan Rice.

FWA, samtök íþróttafréttamanna á Englandi, kusu um besta leikmann ársins í gær og hlaut Fernandes 45 prósent atkvæða í kjörinu.

Hann fékk 28 fleiri atkvæði en Rice og verður því fyrsti United-maðurinn til þess að hreppa verðlaunin síðan Wayne Rooney árið 2010.

Erling Braut Haaland, sem vann verðlaunin árið 2023, var í þriðja sæti og þá fengu Arsenal-mennirnir David Raya, Gabriel og Bukayo Saka einnig talsverðan fjölda atkvæða.

Fernandes, sem er 31 árs gamall, hefur átt stórkostlegt tímabil með United, en hann hefur skorað átta mörk og er þá með nítján stoðsendingar, aðeins einni stoðsendingu frá því að jafna met Thierry Henry og Kevin de Bruyne.

Portúgalski fyrirliðinn hefur veitt liðsfélögum sínum mikinn innblástur á leiktíðinni og þá sérstaklega síðan Michael Carrick tók við af Ruben Amorim.

Fernandes er tíundi United-maðurinn sem hlýtur þessa viðurkenningu og fer hann þar í hóp með leikmönnum á borð við Cristiano Ronaldo, Bobby Charlton, Roy Keane, Eric Cantona og auðvitað Rooney.

Bunny Shaw, framherji Manchester City í WSL-deildinni, var þá besti leikmaður ársins í kvennaboltanum eftir að hafa skorað 19 mörk í deildinni á tímabilinu. Þetta er í annað sinn sem hún hlýtur verðlaunin.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner