Þróttarar eru áfram með fullt hús stiga eftir að hafa unnið góðan 3-0 útisigur á Völsungi í 3. umferð Lengjudeildarinnar í dag. Vestri vann þá HK, 4-3, í stórkostlegum leik á Ísafirði.
Það virðist ekkert ætla að fá Þrótt stöðvað á þessu tímabili, en liðið skoraði öll þrjú mörk sín gegn Völsungi í fyrri hálfleiknum. Aron Snær Ingason skoraði á 2. mínútu.
Hornspyrna var tekin stutt og fékk Sigurður Egill Lárusson boltann, kom honum á fjær á Aron sem skoraði með skalla.
Örn Bragi Hinriksson og Magnús Þórðarson skoruðu tvö mörk á þriggja mínútna kafla þegar um hálftími var liðinn. Örn Bragi hirti frákast í teignum og skoraði áður en Magnús gerði þriðja markið.
Það var rólegra yfir þessu í síðari hálfleiknum og sigldu Þróttarar þessu örugglega heim. Þróttur með þrjá sigra af þremur mögulegum en Völsungur aðeins með tvö stig.
Grímur Ingi Jakobsson var hetja Gróttu í 1-0 sigrinum á Ægi.
Hann skoraði eina markið úr vítaspyrnu á 33. mínútu. Leikmaður Gróttu var tekinn niður við endalínu. Mjög klaufalegt hjá Ægi og skoraði Grímur úr vítinu.
Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn og fengu Ægismenn alveg færi til þess að jafna leikinn, en höfðu ekki erindi sem erfiði. Grótta var að sækja fyrsta sigur tímabilsins, en Ægir er á botninum án stiga og þarf að bíða örlítið lengur eftir fyrstu stigunum.
Bikarmeistarar Vestra unnu fyrsta deildarleik sinn í sumar og það í stórskemmtilegum 4-3 sigri á HK á Kerecis-vellinum á Ísafirði.
Jóhann Þór Arnarsson braut ísinn fyrir HK á 16. mínútu með marki úr vítaspyrnu eftir að Konstantin Cheshmedjiev fór í ömurlega tæklingu. Marvin Darri Steinarsson, markvörður Vestra, giskaði á rétt horn í vítinu, en Jóhann var öryggið uppmálað á punktinum og HK í 1-0.
Ibrahima Balde og Chriss-Albin Mörfelt sneru taflinu við fyrir Vestra með tveimur mörkum á síðustu tíu mínútum fyrri hálfleiksins. Balde skoraði með frábæru skoti fyrirgjöf frá Gunnari Jónasi Haukssyni áður en Mörfelt gerði annað markið eftir skyndisókn.
Á síðustu tuttugu mínútunum komu fjögur mörk. Balde gerði þriðja markið á 72. mínútu áður en Jóhann Þór minnkaði muninn niður í eitt mark átta mínútum síðar.
Pétur Bjarnason kom Vestra aftur í tveggja marka forystu andartaki síðar. Þremur mínútum fyrir leikslok kom Dominic Radic liði HK aftur inn í leikinn með laglegri afgreiðslu.
HK fékk nokkrar hornspyrnur undir lokin og í þriðju tilraun fékk Atli Þór Gunnarsson færi til að jafna en skalli hans í slá og yfir. Það var það síðasta sem gerðist í þessum leik og voru það heimamenn í Vestra sem fögnuðu fyrsta sigri tímabilsins. Vestri er með 4 stig en HK með 6 stig.
Völsungur 0 - 3 Þróttur R.
0-1 Aron Snær Ingason ('2 )
0-2 Örn Bragi Hinriksson ('28 )
0-3 Magnús Þórðarson ('31 )
Lestu um leikinn
Ægir 0 - 1 Grótta
0-1 Grímur Ingi Jakobsson ('33 , víti)
Lestu um leikinn
Vestri 4 - 3 HK
0-1 Jóhann Þór Arnarsson ('16 , víti)
1-1 Ibrahima Balde ('34 )
2-1 Chriss-Albin Mörfelt ('44 )
3-1 Ibrahima Balde ('72 )
3-2 Jóhann Þór Arnarsson ('80 )
4-2 Pétur Bjarnason ('80 )
4-3 Dominik Radic ('87 )
Lestu um leikinn
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|
