Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   lau 09. maí 2026 12:35
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu Enzo jafna með marki úr aukaspyrnu - Mamardashvili fastur á línunni
Mynd: EPA
Argentínumaðurinn Enzo Fernandez jafnaði metin fyrir Chelsea gegn Liverpool á Anfield með glæsilegri aukaspyrnu undir lok fyrri hálfleiksins.

Ryan Gravenberch kom Liverpool yfir snemma leiks með frábæru skoti fyrir utan teig en Enzo jafnaði metin hálftíma síðar með sérstöku aukaspyrnumarki.

Chelsea fékk aukaspyrnu hægra megin við teiginn sem virtist vera sending inn á teiginn, en boltinn fór í gegnum allan pakkann og í fjærhornið.

Giorgi Mamardashvili stóð hreyfingarlaus á línunni á meðan hann sá nokkra leikmenn missa af boltanum áður en hann hafnaði í netinu, en markið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér

Staðan er 1-1 og hefur Chelsea verið töluvert sterkari aðilinn í leiknum.
Slapp
banner
banner