Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   lau 09. maí 2026 15:42
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Leipzig í Meistaradeildina
Leipzig spilar í Meistaradeildinni á næstu leiktíð
Leipzig spilar í Meistaradeildinni á næstu leiktíð
Mynd: EPA
RB Leipzig er búið að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð etir 2-1 sigur liðsins á St. Pauli í dag. St. Pauli er nánast fallið niður í B-deildina.

Austurríski landsliðsmaðurinn Xaver Schlager og Ungverjinn Willi Orban skoruðu mörk Leipzig-manna sitt hvoru megin við hálfleikinn.

Aboudlie Ceesay minnkaði muninn á lokamínútunum en St. Pauli komst ekki nær en það. Leipzig er í 3. sæti með 65 og Meistaradeildarsætið í höfn, en St. Pauli er í næst neðsta sæti með 26 stig og mun alltaf enda meðal þriggja neðstu, en spurningin er hvort liðið nái að koma sér í umspilsleikinn eða ekki. Wolfsburg situr í umspilssætinu og getur nánast tryggt það sæti með sigri á Bayern á eftir.

Stuttgart vann Bayer Leverkusen, 3-1, í baráttu um 4. sætið.

Stuttgart fékk blauta tusku í andltið eftir tæpa mínútu en svaraði því vel með þremur mörkum.

Ermedin Demirovic jafnaði á 5. mínútu og þá kom Max Mittelstadt liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu undir lok hálfleiksins. Deniz Unvav, einn af bestu mönnum Stuttgart á tímabilinu, gerði út um leikinn snemma í þeim síðari.

Stuttgart er í 4. sæti með 61 stig fyrir lokaumferðina, þremur stigum meira en Leverkusen sem er í 6. sæti.

Hoffenheim er enn inn í baráttunni um Meistaradeildarsætið eftir 1-0 sigur liðsins á Werder Bremen.

Bremen spilaði manni færri frá fimmtu mínútu eftir að japanski leikmaðurinn Yukinari Sugawara sá rautt spjald.

Bazoumana Toure, einn eftirsóttasti leikmaður deildarinnar, gerði sigurmarkið tuttugu mínútum eftir rauða spjaldið og hélt pressunni áfram á Stuttgart.

Hoffenheim er með jafnmörg stig og Stuttgart, en Hoffenheim mun spila við Gladbach í lokaumferðinni á meðan Stuttgart heimsækir Eintracht Frankfurt.

Úrslit og markaskorarar:

RB Leipzig 2 - 1 St. Pauli
1-0 Xaver Schlager ('45 )
2-0 Willi Orban ('55 )
2-1 Abdoulie Ceesay ('86 )

Augsburg 3 - 1 Borussia M.
1-0 Michael Gregoritsch ('24 )
2-0 Robin Fellhauer ('42 )
3-0 Michael Gregoritsch ('72 )
3-1 Giovanni Reyna ('90 )

Stuttgart 3 - 1 Bayer
0-1 Aleix Garcia ('1 )
1-1 Ermedin Demirovic ('5 )
2-1 Maximilian Mittelstadt ('45 , víti)
3-1 Deniz Undav ('58 )

Hoffenheim 1 - 0 Werder
1-0 Bazoumana Toure ('26 )
Rautt spjald: Yukinari Sugawara, Werder ('5)
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp
banner
banner
banner