Nýliðar Þórs fengu mikinn skell gegn Íslandsmeisturunum Víkings í gær. Liðið tapaði 6-0 á Víkingsvellinum.
Þór er í 8. sæti með sex stig eftir fimm umferðir en liðið hefur tapað þremur leikjum í röð.
Þór er í 8. sæti með sex stig eftir fimm umferðir en liðið hefur tapað þremur leikjum í röð.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 6 - 0 Þór
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerði tvær breytingar á liðinu frá 1-0 tapi í grannaslagnum gegn KA. Isaac Atanga er meiddur og þá var hinn 17 ára gamli Einar Freyr Halldórsson settur á bekkinn og Ásbjörn Líndal Arnarsson og Aron Ingi Magnússon komu inn í þeirra stað.
„Hann þurfti smá hvíld. Það er búið að sparka mikið í hann og hann var aðeins aumur. Hann er búinn að spila mjög mikið og er að fara spila mikið þannig þetta var dagurinn til að gefa honum smá pásu," sagði Siggi um Einar Frey í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Það var planið að hann myndi spila eitthvað en það var kannski fínt að hann fengi 90 mínútna hvíld í dag og mæti eiturferskur í næsta leik."



