Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
   fös 08. maí 2026 22:42
Viktor Ingi Valgarðsson
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Jakob Byström leikmaður Fram
Jakob Byström leikmaður Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var dramatískt mark Jakob Byströms sem skilaði Fram 3-2 sigri gegn Val á Lambhagavellinum í 6.umferð Bestu Deildar Karla í kvöld.


Lestu um leikinn: Fram 3 -  2 Valur

„Þetta er frábært, þegar ég sá boltann fara inn var ég súper glaður."

Þetta var fimmti leikurinn hans á tímabilinu og hefur alltaf komið inn á. Í dag kom hann inn fyrir Fred Saraiva á 82.mínútu og skoraði glæsilegt sigurmark á 90+4mín.

„Maður vill alltaf spila sem leikmaður en maður verður bara að gera sitt besta þegar maður kemur inná. Þannig ég er mjög glaður að fá að koma inná, spila og hjálpa liðinu að vinna."

Þriðji sigur Fram í röð og stemningin hjá liðinu helst í hendur með því en framundan er verðugt verkefni gegn toppliði KR. „Stemningin er frábær. Það er erfiður leik og við þurfum að æfa vel og ætlum að gera okkar besta."


Jakob, sem á rætur að rekja til Dalvíkur, svaraði spurningum á íslensku eins og sjá má í spilaranum efst.

Slapp
banner
banner
banner