Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   lau 09. maí 2026 14:11
Brynjar Ingi Erluson
Ísak og Lyngby beint aftur upp í efstu deild - Guðlaugur Victor lagði upp í dýrmætum sigri
Ísak mun spila í efstu deild á næsta tímabili
Ísak mun spila í efstu deild á næsta tímabili
Mynd: Aðsend
Guðlaugur Victor lagði upp mark í mikilvægum sigri Horsens
Guðlaugur Victor lagði upp mark í mikilvægum sigri Horsens
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísak Snær Þorvaldsson og félagar í Lyngby eru komnir beint aftur upp í dönsku úrvalsdeildina eftir 2-0 sigur á Hvidovre í dag. Guðlaugur Victor Pálsson lagði þá upp í dýrmætum 4-0 sigri Horsens á Hilleröd, en Horsens er í lykilstöðu um að fara upp með Lyngby.

Hinn íslensk-ættaði William Steindórsson skoraði annað mark Lyngby í 2-0 sigri á Hvidovre, en þetta var fyrsti leikur hans með liðinu á þessu ári og mark sem tryggði Lyngby upp um deild.

Hann kom inn af bekknum á 86. mínútu og skoraði nokkrum mínútum síðar. Afi William er íslenskur.

Ísak Snær Þorvaldsson byrjaði hjá Lyngby í leiknum en var tekinn af velli hálftíma fyrir leikslok. Sigur Lyngby tryggði liðinu aftur upp í úrvalsdeildina, aðeins ári eftir að hafa fallið niður um deild.

Guðlaugur Victor lagði upp annað mark Horsens í öruggum 4-0 sigri á Hvidovre sem var fimmti sigurinn úr síðustu sjö leikjum.

Fyrir nokkrum mánuðum var ekki útlit fyrir að Horsens myndi komast aftur upp í úrvalsdeildina en staðan er allt önnur eftir úrslit síðustu vikna.

Horsens er í öðru sæti meistarariðils B-deildarinnar með 47 stig þegar þrjár umferðir eru eftir.

Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn af bekknum hjá Gwangju FC sem gerði markalaust jafntefli við Gangwon í suður-kóresku úrvalsdeildinni. Gwangju er að eiga erfiða byrjun á tímabilinu en liðið er á botninum með 7 stig eftir þrettán leiki.

Stefán Teitur Þórðarson og félagar í Hannover gerðu 1-1 jafntefli við Bochum í þýsku B-deildinni.

Skagamaðurinn var tekinn af velli í hálfleik er staðan var markalaus.

Staðan í deildinni er þannig að Hannover er í 3. sæti með 59 stig og sem stendur í umspilssæti um að komast í efstu deild. Það mætir Nurnberg í lokaumferðinni og getur þar tryggt umspilssætið og mögulega beint sæti upp um deild ef Elversberg tapar stigum í síðustu tveimur leikjum sínum.
Slapp
banner
banner
banner