Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 09. maí 2026 10:27
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Liverpool og Chelsea: Mamardashvili snýr aftur - Colwill í vörn Chelsea
Mamardashvili er mættur aftur á milli stanganna hjá Liverpool
Mamardashvili er mættur aftur á milli stanganna hjá Liverpool
Mynd: EPA
Liverpool tekur á móti Chelsea í 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 11:30 á Anfield í dag.

Georgíski markvörðurinn Giorgi Mamardashvili er snúinn aftur úr meiðslum og kemur beint í markið hjá Liverpool. Hinn 17 ára gamli Rio Ngumoha byrjar þá gegn sínum gömlu félögum.

Mohamed Salah er áfram fjarri góðu gamni, en þó er búist við að hann muni snúa aftur áður en tímabilinu lýkur. Alexander Isak, sem var ekki með gegn Manchester United í síðasta leik, er á bekknum.

Florian Wirtz er frá vegna veikinda.

Enski varnarmaðurinn Levi Colwill er að byrja sinn fyrsta leik á tímabilinu, en hann sleit krossband á undirbúningstímabilinu með Chelsea. Hann kom inn af bekknum gegn Nottingham Forest í síðustu umferð en fær nú tækifæri í byrjunarliðinu.

Filip Jörgensen er í markinu í stað Robert Sanchez.

Liverpool: Mamardashvili, Jones, Konate, van Dijk, Kerkez, Gravenberch, Mac Allister, Frimpong, Szoboszlai, Ngumoha, Gakpo

Chelsea: Jorgensen, Gusto, Fofana, Hato, Colwill, Cucurella, Andrey Santos, Caicedo, Fernandez, Palmer, Joao Pedro
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner