Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 21:11
Ívan Guðjón Baldursson
HM: River Plate byrjar á sigri
Mynd: EPA
Mynd: EPA
River Plate 3 - 1 Urawa Red Diamonds
1-0 Facundo Colidio ('12 )
2-0 Sebastian Driussi ('48 )
2-1 Yusuke Matsuo ('58 , víti)
3-1 Maximiliano Meza ('74 )

Argentínska stórveldið River Plate spilaði við Urawa Red Diamonds frá Japan í áhugaverðum slag í fyrstu umferð á HM félagsliða.

River Plate var sterkara liðið í fyrri hálfleik og tók forystuna snemma leiks með marki frá Facundo Colidio

Sebastian Driussi tvöfaldaði forystuna í upphafi síðari háfleliks en Japanirnir tóku við sér og minnkuðu muninn með marki úr vítaspyrnu tíu mínútum síðar. Yusuke Matsuo skoraði af vítapunktinum en Japönunum tókst ekki að skapa sér mikið af færum.

Argentínumennirnir voru hættulegri aðilinn og innsigluðu dýrmætan sigur á 74. mínútu, þegar Maximiliano Meza skoraði.

Góð byrjun fyrir River Plate sem er einnig með Inter og Monterrey í riðli.

Argentínska ungstirnið Franco Mastantuono var í byrjunarliði River Plate og mun skipta yfir til Real Madrid eftir HM.

Urawa Red Dragon 1 Hour Before Kickoff
byu/CaliQuakes510 insoccer


River Plate Fans at Occidental Square Seattle
byu/CaliQuakes510 insoccer

Athugasemdir
banner
banner