Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 14:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Láki: Gríðarleg pressa svífur yfir leikmönnum og þjálfurum Vals
Láki var sjálfur þjálfari Vals fyrir rúmum 20 árum síðan.
Láki var sjálfur þjálfari Vals fyrir rúmum 20 árum síðan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Maður sér að það svífur yfir gríðarleg pressa á leikmönnum og þjálfurum liðsins'
'Maður sér að það svífur yfir gríðarleg pressa á leikmönnum og þjálfurum liðsins'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV slóg út Víking í 32-liða úrslitum og KR í 16-liða úrslitum.
ÍBV slóg út Víking í 32-liða úrslitum og KR í 16-liða úrslitum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á fimmtudag, klukkan 17:30, tekur ÍBV á móti Val í átta liða úrslitum Mjólkurbikars karla. ÍBV hefur til þessa slegið út Víking og KR í bikarnum og Valur hefur slegið út Grindavík og Þrótt Reykjavík.

Fótbolti.net ræddi við Þorlák Árnason, þjálfara ÍBV, um komandi leik.

„Við erum mjög vel stemmdir, það eru fá lið eftir í keppninni og við erum búnir að vera sterkt bikarlið, slegið út bæði KR og Víking. Okkur finnst gott að mæla okkur við bestu liðin. Breiðablik, sem við mættum á sunnudag, er með sterka einstaklinga í sínu liðið og það var gaman að spila við þá. Við erum með ungan hóp af leikmönnum sem mér finnst vera að bæta sig mikið og þá langar að spila við bestu leikmennina," segir Láki.

„Valur er með marga góða leikmenn, misstigu sig náttúrulega á laugardaginn, og fyrir vikið er eflaust töluverð pressa á þeim í þessum leik. Maður sér að það svífur yfir gríðarleg pressa á leikmönnum og þjálfurum liðsins. Við búumst bara við svipuðum leik og gegn Breiðabliki, teljum að Valur muni líka fara í að beita löngum sendingum fram völlinn og reyna vinna seinni boltann. Ég held að liðin séu að lesa þetta þannig að liðin þurfi að breyta leik sínum þegar þau spila á grasi."

„Valur er með marga mjög góða fótboltamenn, en okkar reynsla er - út frá Breiðabliki sem er málsvari stuttra sendinga og leikstílsins að ná yfirmönnun á miðjunni - þegar þannig lið er farið að beita þessum leikstíl þá teljum við að liðin séu að lesa þetta þannig að þau þurfi að gera það á þessum velli. Við þurfum að vera viðbúnir því."

„Að því sögðu er Valur með marga hrikalega góða leikmenn. Það getur verið að þeir treysti sér í að spila eins og þeir myndu gera á gervigrasi."

Hjörvar Daði Arnarsson hefur spilað bikarleikina til þessa en Marcel Zapytowski hefur verið í markinu í deildinni. Ertu búinn að taka ákvörðun hvort Marcel eða Hjörvar Daði verði í markinu?

„Nei, við erum að skoða núna hverjir eru klárir í að spila, eru leikhæfir. Það er endurheimt í dag (mánudag) og svo tökum við ákvörðun um markmannsstöðuna og aðrar stöður á miðvikudaginn," segir Láki.
Innkastið - Fyrsti hausinn fokinn
Athugasemdir