Dregið var í 1. umferð í forkeppni í Sambandsdeild Evrópu í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í dag.
Valur mætir Flora Tallinn frá Eistlandi. Leikirnir eru spilaðir 10. og 17. júlí.
Valsmenn spila fyrri leikinn á Hlíðarenda en seinni leikurinn er spilaður í Tallinn.
Flora Tallinn ætti að vera Íslendingum kunnugt. Þetta verður þriðja íslenska liðið sem mætir þeim. Árið 2020 mætti það KR í forkeppni Evrópudeildarinnar þar sem það hafði betur, 2-1, en á síðasta ári tapaði það fyrir Víkingi í 3. umferð Sambandsdeildarinnar.
Víkingar, sem komust alla leið í umspil í úrslitakeppni síðasta tímabils, mæta FC Malisheva frá Kósóvó. Fyrri leikurinn er spilaður í Kósóvó en síðari leikurinn á Víkingsvelli.
Malisheva er að spila í annað sinn í Evrópukeppni, en það datt út í fyrstu umferð í forkeppninni á síðasta ári. Malisheva hafnaði í 3. sæti í Ofurdeild Kósóvó á síðustu leiktíð.
Athugasemdir