Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Tottenham opið fyrir því að selja Son en ekki fyrr en í ágúst
Heung-Min Son gæti yfirgefið Tottenham í ágúst
Heung-Min Son gæti yfirgefið Tottenham í ágúst
Mynd: EPA
Tottenham Hotspur er opið fyrir því að selja fyrirliðann Heung-Min Son í sumar, en ekki fyrr en eftir æfingaferð liðsins til Suður-Kóreu. Þetta kemur fram í Times.

Góður möguleiki er á því að Son sé á förum í sumar eftir að hafa spilað með liðinu síðasta áratuginn.

Son, sem er 32 ára gamall, er sagður hafa fundað með Jose Mourinho, þjálfara Fenerbahce í Tyrklandi, og er Son sagður hafa áhuga á því að spila aftur fyrir Portúgalann.

Times segir að Tottenham sé opið fyrir því að kveðja Son, en vegna samninga er ekki möguleiki að selja hann fyrr en eftir æfingaferð liðsins í Suður-Kóreu.

Samningurinn sem Tottenham gerði neyðir Son til að spila fyrir Tottenham í heimalandinu, en það mætir Newcastle United í æfingaleik 3. ágúst.

Son verður samningslaus næsta sumar og vill Tottenham frekar selja hann í sumar en að missa hann frítt á næsta ári.

Sádi-arabísku félögin Al Hilal og Al Nassr hafa einnig sýnt Son áhuga, sem fagnar 33 ára afmæli sínu í næsta mánuði.
Athugasemdir
banner