Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Íþróttadómstóllinn sneri ákvörðun FIFA við
Torino keypti svo Vlasic frá West Ham sumarið 2023 fyrir rúmlega 10 milljónir evra. Hann kom að 9 mörkum í 30 leikjum með Torino í ítölsku deildinni á nýliðnu tímabili.
Torino keypti svo Vlasic frá West Ham sumarið 2023 fyrir rúmlega 10 milljónir evra. Hann kom að 9 mörkum í 30 leikjum með Torino í ítölsku deildinni á nýliðnu tímabili.
Mynd: EPA
Sky Sports greinir frá því að West Ham United þarf ekki að borga skuld sína til CSKA Moskvu fyrir félagaskipti Nikola Vlasic.

Hamrarnir skulda rúmlega 7 milljónir punda til CSKA eftir félagaskiptin. Þeir áttu að greiða upphæðina í júlí 2022 en gerðu það ekki eftir að bresk yfirvöld settu viðskiptabann á Rússland vegna innrásarinnar í Úkraínu.

Málið fór fyrir Íþróttadómstóllinn í Sviss og var þar dæmt West Ham í hag. Stjórnendur félagsins segjast ekki hafa þorað að greiða upphæðina til CSKA vegna viðskiptabannsins.

West Ham er þó ekki laust allra mála því félagið gæti verið dæmt til að greiða upphæðina til CSKA Moskvu þegar og ef viðskiptabanninu verður aflétt.

Alþjóðafótboltasambandidð FIFA hafði dæmt West Ham til að greiða upphæðina til CSKA Moskvu tafarlaust, en Hamrarnir áfrýjuðu málinu til Íþróttadómstólsins og tókst að snúa ákvörðun FIFA við.

CSKA getur enn áfrýjað málinu til Hæstiréttarins þar í landi.
Athugasemdir
banner