Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 14:00
Brynjar Ingi Erluson
UEFA veitir Greifavellinum undanþágu
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fótboltasamband Evrópu. UEFA, hefur veitt KA undanþágu á að nota Greifavöllinn í tveimur umferðum í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

KA situr hjá í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar og spilar því fyrstu leiki sína í annarri umferð.

Fyrir tveimur árum komst KA í þriðju umferð Sambandsdeildarinnar, en spilaði þá heimaleiki sína á Laugardalsvelli og Lambhagavellinum í Úlfarsárdal.

Félagið hefur nú fengið undanþágu til að spila á Greifavellinum í fyrstu tveimur umferðum forkeppninnar og fá stuðningsmenn KA því tækifæri til að styðja sitt lið á heimavelli.

Ein ástæða þess að KA fékk undanþágu er metnaðarfull og öflug uppbygging á KA-svæðinu, en unnið er hörðum höndum að því að skapa fyrsta flokks aðstöðu sem uppfyllir alla alþjóðlega staðla

„„Þetta er risaskref fyrir félagið og samfélagið allt á Akureyri. Við erum gríðarlega stolt af þeirri viðurkenningu sem felst í því að fá að spila fyrsta heimaleik okkar í Evrópu á Greifavellinum – þrátt fyrir að vera í miðri framkvæmd. Þetta sýnir að framtíðarsýn KA og Akureyrarbæjar nýtur virðingar og trausts í hinu metnaðarfulla alþjóðlega knattspyrnuumhverfi,“ sagði Hjörvar Maronsson, formaður knattspyrnudeildar KA á heimasíðu félagsins.

Dregið verður í aðra umferð Sambandsdeildarinnar í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss á morgun. Leikirnir eru spilaðir 24. og 31. júlí
Athugasemdir