Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
banner
   þri 17. júní 2025 21:03
Ívan Guðjón Baldursson
EM U21: Portúgal og Spánn vinna á markatölu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
EM U21 árs landsliða er í fullum gangi þessa dagana og er riðlakeppninni að ljúka.

Portúgal og Frakkland fara saman upp úr C-riðli mótsins þar sem Portúgal tekur toppsætið á markatölu eftir jafntefli innbyrðis við Frakkland.

Portúgalir enda með 9-0 í markatölu á meðan Frakkar eru með 7-3, eftir stórsigra gegn Georgíu og Póllandi í dag.

Svipað var uppi á teningnum þegar Spánn og Ítalía áttust við í úrslitaleik A-riðils en liðin skildu jöfn 1-1 og voru jöfn á markatölu.

Spánn tekur þó toppsætið á fleiri mörkum skoruðum. Toppsætin tvö komast bæði áfram í útsláttarkeppnina.

Þýskaland, England og Danmörk fara að öllum líkindum með í útsláttarkeppnina en Úkraína spilar úrslitaleik við Holland um síðasta lausa sætið.

Frakkland 4 - 1 Pólland
1-0 Nathan Zeze ('18 )
2-0 Djaoui Cisse ('19 )
3-0 Djaoui Cisse ('29 )
3-1 Ariel Mosor ('61 )
4-1 Matthis Abline ('82 )

Georgía 0 - 4 Portúgal
0-1 Rodrigo Pinheiro ('24 )
0-2 Geovany Quenda ('62 )
0-3 Rodrigo Gomes ('87 )
0-4 Henrique Araujo ('90 , víti)
Rautt spjald: Lasha Odisharia, Georgia U-21 ('5)

Rúmenía 1 - 2 Slóvakía
0-1 Adam Obert ('11 )
0-2 Tomas Suslov ('57 )
1-2 Umit Akdag ('67 )

Spánn 1 - 1 Ítalía
1-0 Jesus Rodriguez ('53 )
1-1 Niccolo Pisilli ('59 )
Athugasemdir
banner
banner