Félagaskiptasérfræðingurinn Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi greinir frá því að Arsenal og RB Leipzig séu ekki að ná samkomulagi um kaupverð fyrir Benjamin Sesko.
Arsenal er einnig að lenda í vandræðum við viðræðum sínum við Sporting CP um kaupverð fyrir Viktor Gyökeres, en þeir eru tvö helstu skotmörk félagsins í sumarglugganum.
Leipzig er talið vilja á milli 80 og 100 milljónir evra til að selja Sesko, sem stjórnendur Arsenal telja vera of mikið. Þá er Arsenal í viðræðum við Sesko en hefur ekki náð samkomulagi við leikmanninn um kaup og kjör.
Arsenal tekur ekki þátt í HM félagsliða og er að reyna að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir upphaf undirbúningstímabilsins.
Sesko er 22 ára gamall Slóveni sem kom að 27 mörkum í 45 leikjum með Leipzig á síðustu leiktíð.
Athugasemdir