Reyna að fá Coady aftur
Úlfarnir eru að vinna hörðum höndum að því að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi leiktíð eftir að hafa misst tvo lykilmenn til Manchester-stórveldanna í byrjun sumars.
Þeir eru búnir að ná samkomulagi við Celta Vigo um kaupverð fyrir kantmanninn Fer López. Wolves borgar tæpar 20 milljónir punda til að kaupa hann en gæti borgað um 2 milljónir til viðbótar í árangurstengdar aukagreiðslur.
Evann Guessand gæti verið næstur inn ef Úlfunum tekst að vinna kapphlaupið um hann. Fenerbahce, sem leikur undir stjórn José Mourinho, hefur einnig áhuga á Guessand, sem er 23 ára gamall framherji hjá OGC Nice í Frakklandi.
Guessand kom að 23 mörkum í 42 leikjum með Nice á nýliðnu tímabili og vakti þannig áhuga ýmissa félagsliða.
Nice er búið að hafna 30 milljón evra tilboði frá Fenerbahce og óljóst hvort Wolves séu reiðubúnir til að bjóða hærra. Guessand er með þrjú ár eftir af samningi.
Úlfarnir eru í leit að nýjum miðverði og bakverði og gæti Conor Coady snúið aftur til félagsins eftir að hafa fallið niður um deild með Leicester City. Rangers er einnig áhugasamt um leikmanninn.
Úlfarnir voru lengi vel í fallbaráttu á síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni en tókst að snúa slöku gengi við eftir ráðningu Vítor Pereira á miðju tímabili.
Athugasemdir