Portúgalski stjórinn Ruben Selles er talinn líklegastur til að taka við keflinu hjá Sheffield United. Sky Sports greinir frá.
Selles var rekinn frá Hull City á dögunum þrátt fyrir að hafa bjargað liðinu frá falli úr B-deildinni.
Hann er sagður efstur á blaði hjá Sheffield United sem hefur tekið ákvörðun um að reka Chris Wilder.
Wilder mistókst að koma Sheffield aftur upp í úrvalsdeildina eftir að hafa verið lengi vel í toppbaráttu í B-deildinni. Liðið fór í úrslit í umspilinu og var í forystu þegar lítið var eftir, en glutraði niður forystunni og tapaði síðan með seinu sigurmarki Sunderland.
Selles var gerður að bráðabirgðastjóri hjá Southampton í tvígang 2022 og 2023. Það var hans fyrsta gigg sem aðalþjálfari, en eftir þá dvöl hélt hann til Reading.
Hull keypti hann frá Reading í desember og bjargaði liðinu frá falli áður en hann var óvænt rekinn.
Athugasemdir