Næstu þrír leikir ráða framtíð Amorim - Glasner, Southgate, Silva og Iraola orðaðir við Man Utd - Liverpool horfir til Araujo
Venni: Ég get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
   mið 17. september 2025 22:42
Anton Freyr Jónsson
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var lýgilegt en þetta var frekar rólegt í fyrri hálfleik og menn svolítið að þreyfa á hvorum öðrum en svo fór þetta bara allt á kvínandi botn í seinnihálfleik og þetta var bara stórskemmtilegt." sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari HK eftir 4-3 sigur á Þrótti í ótrúlegum fótboltaleik sem fór fram í Kórnum.  Þetta var fyrri leikur leikur liðanna í þessu umspili um laust sæti í Bestu deild karla árið 2026. 

Lestu um leikinn: HK 4 -  3 Þróttur R.

Staðan var 0-0 í hálfleik en skoruð voru sjö mörk í síðari hálfleik og það var ekkert sem benti til þess í hálfleik í kvöld.

„Nei heldur betur ekki en svo byrjum við síðari hálfleikinn af krafti og náum inn tveimur mörkum en svo voru bara allir haltrandi í liðinu og það voru einhverjir sex eða sjö að biðja um skiptingu þannig við þurftum að velja vel úr og það riðlast aðeins leikskipulagið við það, menn voru orðnir vel laskaðir þannig en það var kannski óþarfi að fá á sig þrjú mörk en við komum sterkir til baka og sýndum alvöru karakter maður." sagði Hemmi hálfhlægjandi 

„Ég hafði eiginlega ekkert tíma í að fókusa á leikinn í síðari hálfleik afþví það voru svo margir að biðja um skiptingu þannig það var smá púsl þarna hjá okkur."


Hveru ofarlega er þetta yfir bestu leiki ársins?

„Þetta var bara ótrúlega skemmtilegt að taka þátt í svona leik. Við bættum upp fyrir fyrri hálfleikinn og fólk fékk eitthvað fyrir peninginn."

Það er hálfleikur í einvíginu en seinni leikurinn fer fram á Avisvellinum í Laugardal næstkomandi sunnudag og HK fer með 4-3 forystu þangað.

„Við erum með forskot en það er lítið og þetta er eins og við vitum bara „game on"  og við verðum bara sjá til hverju til getum teslað saman."

Viðtalið við Hermann má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.





Athugasemdir
banner