Keith Andrews, stjóri Brentford, var í skýjunum eftir sigur liðsins gegn Aston Villa í 3. umferð enska deildabikarsins í kvöld.
Hákon Rafn Valdimarsson var hetja Brentford en hann varði tvær vítaspyrnur í vítaspyrnukeppninni. Hann byrjaði hins vegar ekki vel þar sem hann gaf Harvey Elliott sitt fyrsta mark fyrir Aston Villa.
Hákon Rafn Valdimarsson var hetja Brentford en hann varði tvær vítaspyrnur í vítaspyrnukeppninni. Hann byrjaði hins vegar ekki vel þar sem hann gaf Harvey Elliott sitt fyrsta mark fyrir Aston Villa.
„Hákon var hetjan eftir erfitt kvöld. Það er vitnisburður um hópinn og umhverfið hérna, mér er alveg sama um mistök, þetta snýst um hvað leikmenn gera dags daglega og þeir standa sig alltaf. Góður endir á kvöldinu," sagði Andrews.
„Hann átti eina góða vörslu í seinni hálfleiknum. Við gáfum þeim mark en við vorum í góðum málum eftir það, byrjuðum seinni hálfleikinn vel, er í skýjunum með að komast áfram."
much love pic.twitter.com/cvqoBRvNLR
— Brentford FC (@BrentfordFC) September 16, 2025
Athugasemdir