fim 18. maí 2023 16:10
Kjartan Leifur Sigurðsson
Byrjunarlið HK og KA: Marciano og Örvar tylla sér á bekkinn
Aziz fær hvíld í dag
Aziz fær hvíld í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Örvar fær einnig hvíld
Örvar fær einnig hvíld
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Klukkan 17:00 í dag fer fram áhugaverður leikur í Kórnum þegar heimamenn í HK taka á móti KA í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Bæði lið unnu afar sannfærandi sigra í 32 liða úrslitum. HK lögðu Uppsveitir af velli 5-0 og HK unnu einnig 5-0 sigur en þeir mættu KFG.

Lestu um leikinn: HK 1 -  3 KA

Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK gerir þrjár breytingar frá því í sigrinum gegn Keflavík. Ívar Orri Gissurarson, Brynjar Snær Pálsson og Atli Þór Jónasson koma inn fyrir Marciano Aziz, Örvar Eggertsson og Leif Andra Leifsson.


Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA gerir tvær breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Val. Harley Willard og Birgir Baldvinsson koma inn í stað Daníels Hafsteinssonar og Þorra Más Þórissonar.


Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
0. Eyþór Aron Wöhler
3. Ívar Orri Gissurarson
5. Ahmad Faqa
8. Arnþór Ari Atlason
10. Atli Hrafn Andrason
14. Brynjar Snær Pálsson
16. Eiður Atli Rúnarsson
21. Ívar Örn Jónsson
23. Hassan Jalloh
30. Atli Þór Jónasson

Byrjunarlið KA:
12. Kristijan Jajalo (m)
2. Birgir Baldvinsson
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
5. Ívar Örn Árnason (f)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
30. Sveinn Margeir Hauksson
37. Harley Willard
77. Bjarni Aðalsteinsson
Athugasemdir
banner
banner
banner