Jamie Carragher, fótboltasérfræðingur á Sky Sports, er í sjónvarpsverinu þar sem hann horfir á mikilvægan heimaleik titilbaráttuliðs Arsenal gegn löngu föllnu liði Burnley.
Arsenal þarf á sem stærstum sigri að halda gegn Burnley til að bæta markatöluna sína í titilbaráttunni gegn Manchester City, en staðan er aðeins 1-0 í leikhlé.
Arsenal hefur fengið nokkur góð marktækifæri og skoraði Kai Havertz eina mark fyrri hálfleiksins eftir hornspyrnu.
„Arsenal verður reyna að skora mikið af mörkum í þessum leik. Auðvitað er það mikilvægasta að vinna leikinn, en að mínu mati er Burnley lélegasta lið deildarinnar," sagði Carragher fyrir upphafsflautið.
„Wolves er á botninum en öll tölfræði segir að Burnley sé lakasta liðið. Arsenal má ekki tapa deildinni á markatölu eftir að hafa spilað heimaleik við Burnley á þessum tímapunkti.
„Þjálfarar eru duglegir að segja við okkur að smáatriðin skipta máli og þetta er eitt af þeim. Það hlýtur að vera leikplanið hjá Arsenal að reyna að skora sem mest af mörkum í þessum leik."
Mikel Arteta stillti upp sóknarsinnuðu byrjunarliði með Eberechi Eze og Martin Ödegaard á miðjunni ásamt Declan Rice.
Ef Arsenal gerir jafntefli við Crystal Palace í lokaumferðinni og City vinnur báða leikina sem eru eftir þá mun City vinna úrvalsdeildina á markatölu.
18.05.2026 18:00
Byrjunarlið Arsenal og Burnley: Gyökeres bekkjaður


