Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   mán 18. maí 2026 19:28
Ívan Guðjón Baldursson
Mikael skoraði strax eftir meiðsli - Hættu leik vegna óláta
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson
Það voru aðeins tvö Íslendingalið sem mættu til leiks í dag þegar Djurgården og Göteborg mættu til leiks í efstu deild sænska boltans.

Mikael Neville Anderson spilaði sinn fyrsta byrjunarliðsleik eftir að hafa verið frá keppni í sex vikur vegna meiðsla og skoraði fyrsta markið er Djurgården tók á móti Sirius.

Mikael kom inn af bekknum í síðustu tveimur leikjum og gaf eina stoðsendingu en hann lék fyrstu 56 mínúturnar í dag.

Djurgården tapaði 2-3 og er með 13 stig eftir 8 umferðir. Sirius er óvænt á toppi deildarinnar eftir frábæra byrjun á nýrri leiktíð, með 22 stig.

Á sama tíma byrjaði Kolbeinn Þórðarson á bekknum er Göteborg heimsótti Örgryte en hætta þurfti leik í fyrri hálfleik vegna óláta á áhorfendapöllunum.

Gautaborg komst í tveggja marka forystu áður en heimamenn minnkuðu muninn og var staðan því 1-2 þegar dómarinn ákvað að stöðva leikinn útaf óhemjumikilli blysnotkun stuðningsmanna gestaliðsins. Þeir kveiktu í treflum og fánum og sköpuðu þar með hættu á áhorfendapöllunum.

Eftir fundarhöld á milli liðanna var ákveðið að fresta restinni af leiknum. Mögulegt er að seinni hálfleikurinn verði leikinn fyrir luktum dyrum á morgun.

Djurgarden 2 - 3 Sirius
1-0 Mikael Neville Anderson ('12)
1-1 Marcus Lindberg ('38)
1-2 Robbie Ure ('43)
2-2 Tobias Anker ('51, sjálfsmark)
2-3 Neo Jonsson ('57)

Örgryte 1 - 2 Göteborg
Seinni hálfleik frestað


Slapp
banner
banner