Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
   lau 18. júní 2022 16:36
Jón Már Ferro
Úlfur Arnar: Ég er ekki að fara klína þessu á þá
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er rosalega auðvelt að benda á að við eigum að fá þrjár vítaspyrnur í leiknum og þá náttúrulega breytist leikurinn mikið. Mér fannst við bara spila illa í dag," sagði svekktur Úlfur Arnar, þjálfari Fjölnis.


Lestu um leikinn: Fjölnir 1 -  2 Vestri

Það er rétt metið hjá þér, við viljum stjórna leiknum, mér fannst við ekki ná að gera það nægilega vel og bara á fyrstu mínútunum fékk maður einhverja ónotatilfinningu með þennan leik. Mér fannst við einhvernvegin ekki alveg vera upp á okkar besta," sagði Úlfur.

Dómararnir gera alltaf sitt besta, en mér finnst ótrúlegt að hann sjái ekki til dæmis vítaspyrnudóminn þar sem hann fer í tæklingu, einhver Vestramaðurinn, hann liggur og setur hendina upp fyrir búkinn á sér og við spörkum yfir búkinn á honum og beint í hendina á honum. Aðstoðardómarinn sagði að hann hafi verið í snóker og ekki séð það og Einar dómari sagði að hann hafi ekki séð það nægilega vel og hann þarf að vera 100%. Ég skil það bara vel. Ég er ekki að klína þessu á þá," sagði Úlfur að lokum.


Slapp
banner
banner