"Mér fannst við vera smá tíma að vinna okkur inn í leikinn, byrjuðum ekkert sérstaklega vel en fannst við vinna okkur vel inn í leikinn en svo fannst mér við bara spil vel í seinni hálfleik og ég er stoltur af þessari frammistöðu. Það er bara rannsóknarefni að við skoruðum ekki mark í leiknum, þetta blessaða xG ég væri rosalega til í að sjá það því ég held við séum bara standa jafnvígis þeim jafnvel bara að vinna þá í þeim bardaga"
"Svo er bara svekkjandi hvernig þessi mörk leka inn, það kemur hornspyrna og við sköllum hann út þá kemur skot og Grjóni sér hann ekki fyrr en alltof seint og hann lekur inn út við stöng. Svo seinna markið þá er Grjóni kominn með hönd á boltann svo er einhvað samskiptaleysi, við hreinsum boltann í rauninni úr höndunum hans Grjóna, beint á Blika sem skorar bara, gegn gangi leiksins en svona er þetta stundum en er stoltur af frammistöðunni" Sagði Úlfur Arnar þjálfari Fjölnismanna í viðtali eftir leik.

Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 2 Breiðablik
Fjölnismönnum er spáð góðu gengi í sumar og maður heyrir það útundan sér á götum bæjarins. Fínt kannski líka að máta sig við ríkjandi Íslandsmeistarana rétt fyrir mót?
" Við erum gríðarlega spenntir, við erum mjög vel undirbúnir og erum í góðu formi og það er mikil samheldni og stemning í hópnum og við erum bara gríðarlega spenntir að takast á við þessa Lengjudeild"
"Ég bara sver það ef ég hefði mátt ráða leik í þessum 32-liða úrslitum þá hefði ég valið heimaleik á móti Breiðablik, ég hefði helst viljað að þeir myndu stilla upp sínu besta liði en skil vel að þeir þurfa að rótera liðinu, mikið álag á þeim en að því sögðu þetta lið sem þeir stilla upp í dag myndi líklega enda í efri helmingnum í Bestu deildinni. Þetta er leikurinn sem við vildum fá og vildum máta okkur við þá og virkilega ánægður með það sem ég sá í dag"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan þar sem að Úlfur ræðir t.d. sóknarleik liðsins og fleira.
Athugasemdir