„Þetta var löng fæðing. Við tókum þá á úthaldinu," sagði Guðmundur Steinarsson þjálfari Njarðvíkur eftir 4-1 sigur á Augnablik í Borgunarbikarnum í kvöld.
„Ég vil helst fá sem auðveldastan andstæðing. Maður vill helst fá lið í deild fyrir neðan og heimaleik."
Njarðvíkingar hafa byrjað tímabilið af krafti en þeir hafa einnig unnið fyrstu tvo leiki sína í 2. deildinni.
„Það tók næstum tvo mánuði að vinna leik í fyrra og við erum ánægðir með að hafa náð í tvo sigra snemma móts."
Guðmundur einbeitir sér þessa stundina að því að þjálfa Njarðvík en skórnir eru uppi á hillu.
„Það fer mikill tími í æfingar og þjálfun og mér finnst ég ekki geta einbeitt mér að báðu í einu þannig að ég læt duga að vera á hliðarlínunni í bili."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir





















