Indverska félagið Kerala Blasters hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net reynt að fá Elías Má Ómarsson í sínar raðir, en hingað til allavega fengið neitun frá Elíasi og hans teymi.
Elías er þrítugur framherji sem ákvað að endursemja ekki við NAC Breda í Hollandi.
Áhugi hefur verið á Keflvíkingnum frá öðrum félögum í hollensku úrvalsdeildinni og einnig frá Englandi.
Elías er þrítugur framherji sem ákvað að endursemja ekki við NAC Breda í Hollandi.
Áhugi hefur verið á Keflvíkingnum frá öðrum félögum í hollensku úrvalsdeildinni og einnig frá Englandi.
Ef Elías myndi enda hjá Kerala Blasters yrði hann annar Íslendingurinn til að spila fyrir félagið því árið 2018 fór Guðjón Baldvinsson á láni til félagsins frá Stjörnunni. Þá var Hermann Hreiðarsson aðstoðarþjálfari liðsins.
Elías hefur verið erlendis í atvinnumennsku frá því að hann fór frá Keflavík eftir tímabilið 2014. Hann hefur leikið í Noregi, Svíþjóð, Frakklandi og Hollandi á sínum atvinnumannaferli. Hann átti gott tímabil í vetur og náði þeim áfanga að hafa skorað 100 deildarmörk á sínum ferli.
Hann ræddi við Víkurfréttir á dögunum og sagðist þá stefna að því að vera fimm ár í viðbót í atvinnumennsku.
„Klúbburinn hafði sagt mér að áhugi væri hjá þeim fyrir að halda mér en við náðum ekki saman og því er umboðsmaður minn að kanna áhuga liða en bæði hafa félög frá Hollandi og Englandi sýnt áhuga. Það var alltaf draumurinn að leika í Englandi og hver veit nema sá draumur rætist nú en ég er pollrólegur og ætla njóta þess að komast í frí. Ég ætla mér að eiga fimm ár í viðbót í atvinnumennsku en meiðsli geta verið fljót að setja strik í þann reikning."
„Fjölskyldunni líður vel hér í Hollandi og því á ég frekar von á að við höldum áfram hér, ég á unnustu og eigum við þrjú börn á aldrinum sjö til tveggja ára. Unnustan er frá Keflavík eins og ég, æskuástin má segja. Hún hefur verið mér mikil stoð og stytta allan þennan tíma, hefur fórnað sínu má segja fyrir mig og fjölskyldu okkar og fyrir það er ég afskaplega þakklátur," sagði Elías við Víkurfréttir.
— ISL & I-League Transfer News (@indiantransfer) June 16, 2025
Athugasemdir