Óskar Borgþórsson og hans menn í norska B-deildarliðinu Sogndal unnu 4-1 sigur á Skeid í kvöld.
Fylkismaðurinn byrjaði á tréverkinu hjá Sogndal en kom inn af bekknum þegar tíu mínútur voru til leiksloka og lagði upp fjórða markið aðeins þremur mínútum síðar.
Óskar hafði ekkert spilað í síðustu fimm leikjum Sogndal, en þessi innkoma ætti að hjálpa honum að sækja mínútur í næstu leikjum.
Sogndal er í 4. sæti B-deildarinnar með 19 stig.
Hinrik Harðarson kom inn af bekknum á lokamínútunum í 1-1 jafntefli Odd gegn Mjöndalen og þá voru þeir Ólafur Guðmundsson og Davíð Snær Jóhannesson báðir í byrjunarliði Álasunds sem tapaði fyrir Kongsvinger, 3-0.
Odd er í 5. sæti með 18 stig en Álasund í 10. sæti með 14 stig.
Athugasemdir