Dietmar Hamann, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að það væri rökrétt ef Liverpool og Atletico Madrid myndu skipta á leikmönnum.
Á hann þar við sóknarmennina Julian Alvarez og Darwin Nunez.
Á hann þar við sóknarmennina Julian Alvarez og Darwin Nunez.
Alvarez yfirgaf Manchester City síðasta sumar og fór þá til Atletico þar sem hann átti mjög gott tímabil. Hann skoraði 29 mörk og lagði upp sjö ofan á það.
Nunez má fara frá Liverpool í sumar og er Atletico eitt af þeim félögum sem hefur verið nefnt.
„Ég myndi elska að sjá Julian Alvarez hjá Liverpool og það meikar mikið sens ef Darwin Nunez er hluti af þeim skiptum," sagði Hamann. „Mér finnst Nunez vera gerður fyrir Atletico."
Athugasemdir