Gennaro Gattuso, nýr landsliðsþjálfari Ítalíu, hefur þegar hringt í 35 leikmenn og spjallað við þá eftir að hann var ráðinn í starfið.
Gattuso svaraði spurningum á fréttamannafundi í dag en hann tók við Ítalíu af Luciano Spalletti.
Gattuso svaraði spurningum á fréttamannafundi í dag en hann tók við Ítalíu af Luciano Spalletti.
„Draumur hefur ræst og vonandi stenst ég væntingar. Þetta verður ekki auðvelt en þannig er þetta oft í lífinu. Við höfum trú á því að við getum afrekað eitthvað magnað," segir Gattuso.
„Markmiðið er að komast aftur á HM. Það er nauðsynlegt fyrir okkur og ítalskan fótbolta. Við þurfum að finna eldmóðinn á ný og hætta að eyða orku í neikvæðni."
„Að skapa liðsheild er mikilvægast, mikilvægara en leikfræðin. Við eigum marga frábæra leikmenn og ég hikaði ekki þegar ég fékk símtalið. Ég hef trú á þessum hópi. Ég hef þegar hringt í 35 leikmenn síðustu daga."
Athugasemdir