Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pep ákvað að velja sjálfur og valdi Bernardo Silva
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur valið Bernardo Silva sem nýjan fyrirliða liðsins.

Þetta er í fyrsta sinn í níu ár sem Guardiola velur sinn eigin fyrirliða, hann hafði látið leikmannahópinn taka ákvörðunina til þessa.

Kyle Walker var fyrirliði City á síðasta tímabili en hann fór á láni til AC Milan í janúar og var þar seinni hluta tímablsins.

„Í fyrsta sinn á ferlinum, þá valdi ég fyrirliðann. Ég var ekki hrifinn af því sem gerðist á síðasta tímabili, og ég ákvað á þessu tímabili myndi ég yrði fulltrúi liðsins. Stundum vil ég vera stjórinn."

„Sem fyrirliði verður þú alltaf að hugsa hvað sé best fyrir liðið. Bernardo hefur verið stórkostlegur fyrir okkur í mörg ár. Alltaf á slæmum augnablikum, vissi hann að hann yrði að stíga upp,"
sagði spænski stjórinn.

Silva, sem er þrítugur Portúgali, kom til City frá Mónakó sumarið 2017. Ruben Dias, Rodri og Erling Haaland eru hinir þrír í fyrirliðahópi City.
Athugasemdir
banner