Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gyökeres neitar að tala við Sporting
Viktor Gyökeres.
Viktor Gyökeres.
Mynd: EPA
Sænski sóknarmaðurinn Viktor Gyökeres hefur neitað að fara á fund með Sporting til að hreinsa andrúmsloftið við félagið.

Það komu fréttir um það á dögunum að Gyökeres væri bálreiður út í Sporting þar sem hann taldi sig vera með samkomulag við félagið um að það myndi leyfa sér að fara fyrir 70 milljónir evra, en félagið ætlaði ekki að standa við það.

Í samningi sænska framherjans er riftunarákvæði upp á 100 milljónir evra en hann taldi sig hafa gert samkomulag við félagið um að vera áfram á síðasta ári gegn því að hann fengi að fara ef 70 milljón evra tilboð kæmi í sumar.

Núna er sagt að Sporting hafi hækkað verðmiðann á þessum eftirsótta framherja og Gyökeres sé ekki sáttur við það.

Samkvæmt Record í Portúgal hefur Sporting reynt að fá Gyökeres til fundar en sóknarmaðurinn hefur engan áhuga á þeirri beiðni.

Hann er í fríi í Saint Tropez og ætlar að vera þar næstu daga.

Gyökeres hefur verið hvað mest orðaður við Arsenal og Manchester United, en það er útlit fyrir það núna að Benjamin Sesko verði sá sóknarmaður sem Arsenal velur.
Athugasemdir
banner
banner