
Þór/KA hefur gengið frá samningsmálum fjögurra efnilegra leikmanna liðsins.
Unglingalandsliðsstelpurnar Bríet Kolbrún Hinriksdóttir og Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir eru tvær af þeim sem hafa samið við félagið en þær eiga samanlagt fjóra leiki að baki fyrir U15 landsliðið.
Eva S. Dolina-Sokolowska og Ísey Ragnarsdóttir hafa einnig skrifað undir sína fyrstu samninga.
Allar eru stelpurnar fæddar 2008 nema Bríet Kolbrún sem er fædd 2009.
Stelpurnar búa yfir afar lítilli reynslu úr meistaraflokki þar sem þær eru aðeins að stíga sín fyrstu skref.
Athugasemdir