Franski þjálfarinn Julien Stephan er að taka við keflinu hjá enska B-deildarfélaginu QPR en það er Sky Sports sem greinir frá.
Stephan hefur átt í viðræðum við QPR síðustu daga og er gert ráð fyrir því að hann verði kynntur nýr stjóri liðsins um helgina.
Frakkinn var rekinn frá Rennes í nóvember eftir að liðið tapaði fimm af fyrstu tíu leikjum frönsku deildarinnar en áður þjálfaði hann Strasbourg frá 2021 til 2023.
QPR hefur verið í leit að nýjum stjóra síðan Marti Cifuentes var settur í launað leyfi frá störfum í apríl.
Athugasemdir