Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
banner
   mið 18. júní 2025 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Frá Forest í Man Utd eða stórlið á Ítalíu?
Mynd: EPA
Callum Hudson-Odoi, leikmaður Nottingham Forest, er orðaður við félagaskipti frá enska félaginu í sumar.

Hann er 24 ára enskur kantmaður sem á eitt ára eftir af samningi sínum við Forest sem vill framlengja við kappann.

Manchester United er á meðal þeirra félaga sem sagt er hafa áhuga og á að hafa spurst fyrir um möguleikann á að fá hann í janúar en þeirri fyrirspurn var hafnað.

Ítölsku félögin Roma og Napoli eru þá sögð áhugasöm um að fá kappann.

„Hvers vegna myndir þú fara til Man United þegar þú hefur séð svo marga leikmenn fara þangað og eyðileggja ferilinn sinn?" sagði Gabriel Agbonlahor í morgunþætti talkSPORT.

„Ég myndi ekki fara þangað, ég myndi fara til Napoli ef þetta væri ég. Sjáðu (Scott) MctTominay, (Billy) Gilmour, af hverju ekki? Manchester United myndi draga hann niður," sagði Agbonlahor.

Hudson-Odoi þótti mjög spennandi leikmaður þegar hann var að reyna brjóta sér leið í liðið hjá Chelsea fyrir nokkrum árum en hann náði einhvern veginn ekki alla leið. Hann lék vel með liði Forest í vetur sem kom öllum á óvart og náði Sambandsdeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner