Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vilja 40 milljónir fyrir Ramsey - Rogers ekki til sölu
Mynd: EPA
Daily Mail greinir frá því að Aston Villa sé tilbúið til að selja kantmanninn Jacob Ramsey fyrir 40 milljónir punda í sumar.

Ramsey er 24 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi sínum við Aston Villa. Hann kom að 11 mörkum í 46 leikjum með liðinu á nýliðnu tímabili.

Morgan Rogers er þá ekki til sölu í ljósi áhuga frá Arsenal. Rogers, sem verður 23 ára í júlí, er með fimm ár eftir af samningi hjá Aston Villa eftir að hafa verið keyptur í janúar í fyrra.

Rogers kom að 29 mörkum í 54 leikjum með Villa og er lykilmaður í framtíðaráformum Unai Emery.
Athugasemdir
banner